Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér

1. tbl. 2010

Framhaldsverkefni fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á Austurlandi
Útflutningsráð býður ferðaþjónustufyrirtækjum á Austurlandi þátttöku í verkefninu Frá hugmynd til markaðar – HH2 sem er sjálfstætt framhald hins árangursríka og vinsæla verkefnis Hagvöxtur á heimaslóð (HH). Verkefnið er sniðið að þörfum fólks í ferðaþjónustu og ætlað eigendum, framkvæmdastjórum, forstöðumönnum eða markaðsstjórum. Mikil áhersla er lögð á virka þátttöku í verkefninu. Nánar >

Mikill áhugi á útflutningi hjá íslenskum fyrirtækjum
Viðskiptafulltrúar sem starfa við sendiráð Íslands víðsvegar um heim voru staddir hér á landi á dögunum í heila viku þar sem tíminn var notaður til að kynna sér nýjustu straumana í íslensku viðskiptalífi og hitta fyrirtæki. Á annað hundrað fulltrúar íslenskra fyrirtækja nýttu sér tækifærið til að koma og hitta viðskiptafulltrúana í skrifstofu Útflutningsráðs og ljóst að mikill áhugi er fyrir því að skoða möguleika á útflutningi hjá íslenskum fyrirtækjum. Nánar >

Stór markaður – en kallar á mikla vinnu 
Hópur fulltrúa íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja er nýkominn frá Moskvu þar sem þau kynntu möguleika Íslands sem áfangastað fyrir ferðaskrifstofum í Rússlandi. Ferðin var skipulögð af Airtouch sem er umboðsaðili Icelandair í samvinnu við Útflutningsráð og Ferðamálastofu ásamt grænlensku og færeysku ferðamálaráðunum. Nánar >

Orka úr jarðvarma og umhverfisvænn arkitektúr vöktu athygli
Þrjú íslensk fyrirtæki, Reykjavik Geothermal, Geysir Architects og Landsvirkjun Power sýndu á sameignlegum bás á Útflutningsráðs á orkusýningunni World Future Energy Summit sem haldin var dagana 18.-21. jan sl. Nánar >

Fræðslufundur um val og stjórnun á umboðs- og dreifingaraðilum á útflutningsmörkuðum
Útflutningsráð stóð fyrir fræðslufundi um val og stjórnun umboðsmanna og dreifingaraðila á útflutningsmörkuðum, á Hilton Reykjavík Nordica, föstudaginn 15. janúar síðastliðinn. Nánar >

Góðar viðtökur íslenskra fyrirtækja á Indlandi
Fulltrúar 11 fyrirtækja tóku þátt í viðskiptasendinefnd á Indlandi í tilefni af opinberri heimsókn forseta þangað. Einnig voru í för fulltrúi Fjárfestingarstofunnar og Film in Iceland. Viðskiptasendinefndin hóf heimsóknina til Indlands í Mumbai, þriðjudaginn 12. janúar sl., þar sem haldinn var fjölmennur morgunverðarfundur og fyrirtækin voru kynnt. Að fundi loknum áttu fyrirtækin fundi með heimamönnum og var dagskráin þétt skipuð. Nánar >

Hópur 16 fyrirtækja á ferðasýningu í Noregi
Útflutningsráð Íslands í samstarfi við Ferðamálastofu og sendiráð Íslands í Ósló skipulagði nýverið þátttöku 16 fyrirtækja á ferðakaupstefnunni Reiseliv sem haldin var 14.-17. janúar sl. Reiseliv er haldin árlega í Lilleström og er stærsta ferðasýningin sem haldin er í Noregi. Nánar >

Styrkir til kvenna í handverki og hönnun
Byggðastofnun í samstarfi við Handverk og hönnun, Hönnunarmiðstöð, Listaháskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ímark og Útflutningsráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um stuðning við markaðssetningu erlendis á íslensku handverki og hönnunarvörum. Heildarráðstöfunarfé er tíu milljónir króna, hámarksstyrkur er tvær milljónir króna, en þó aldrei hærri en 50% af heildarkostnaði. Nánar >

Undirbúningsfundur vegna handleiðslu- og þróunarverkefnis Útflutningsráðs og Ferðaþjónustu bænda
Mánudaginn 18. janúar var haldinn undirbúningsfundur með 14 aðilum frá ferðaþjónustu bænda þar sem rætt var um hvar væri hægt að auka möguleika í þjónustu við ferðamenn. Í framhaldi af því verður ákveðið með hvaða hætti verkefnið verður framkvæmt. Nánar >

Erindi Rob Snell frá 1. desember sl.
Vekjum athygli á því að erindi Rob Snell er komið á vefinn en hann var einn fyrirlesara á ráðstefnunni Vefurinn skapar verðmæti - Aukin tækifæri til útflutnings sem haldin var 1. desember á Hilton Reykjavík Nordica. Mæting fór fram úr björtustu vonum en um 500 manns mættu á ráðstefnuna og fræddust um netverslun og þær leiðir sem reynst hafa vel. Nánar >

Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér