Markaðsupplýsingar
Fjármögnun
Fjármögnun
Frá fjölþjóðastofnunum og sjóðum
Flestar alþjóðastofnanir og sjóðir eru bundin við ákveðna heimshluta, athafnasvið, eða verkefni af tilteknum tegundum og stærðargr áðum, eins og eftirfarandi lýsingar draga fram.
Alþjóðabankinn heldur opin alþjóðleg útboð þar sem fyrirtæki, verktakar og ráðgjafar eru fjármagnaðir á grundvelli gæða og verðs. Fjármögnuð verkefni eru í öllum mögulegum geirum, um allan heim. Langstærstur hluti fjármuna frá bankanum er lánaður til viðskiptavina bankans, þ.e. einstakra ríkja, sem síðan ráða ráðgjafa og verktaka í opnum alþjóðlegum útboðum. Útboðin eru auglýst á vefsíðu Development Business.
» Sjá nánar um Alþjóðabankann
Norræni þróunarsjóðurinn (Nordic Development Fund, NDF) veitir styrki til norrænna loftslagsverkefna í ýmsum Afríkulöndum, auk sem ríkja í Asíu og þremur í Rómönsku Ameríku. Öll verkefni hjá NDF fara í gegnum opin útboð sem auglýst eru á heimasíðu þeirra