Birdfair - Rutland, England
föstudagur 20. ágúst 2010 - sunnudagur 22. ágústÍslandsstofa hefur unnið að uppbyggingu á ferðatengdri þjónustu við fuglaskoðara. Fyrir ári síðan var skipulögð þátttaka fyrirtækja í sýningunni Birdfair í Rutland í ágúst 2009.
Nú er ætlunin að endurtaka leikinn og hefur Íslandsstofa fengið úthlutað 18m2 bás á sýningunni. Íslensku fyrirtækin sem taka þátt í Birdfair að þessu sinni eru: Gavia Travel, Vesturferðir, Fuglar á Suð-Austurlandi, Breiðarfjarðafléttan, Fuglar á Suðurlandi, Puffin.is, Emmson, Hofstaðir, Fuglar á Norð-Austurlandi og Hótel Brimnes.
Frekari upplýsingar veita Berglind Steindórsdóttir, berglind@islandsstofa.is eða Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is, sími 511 4000.
Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á vefsíðunni: www.birdfair.org.uk.





