Sjávarútvegssýningarnar í Brussel 2010
þriðjudagur 27. apríl 2010 - fimmtudagur 29. aprílÚtflutningsráð Íslands skipuleggur þátttöku íslenskra fyrirtækja á European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe sem haldnar verða í Brussel 27.–29. apríl nk., www.euroseafood.com.
Í ár eru fulltrúar frá 26 fyrirtækjum þátttakendur á sýningunum tveimur.
Þetta eru stærstu sjávarútvegssýningar sem haldnar eru í heiminum á hverju ári og er þetta í 18. sinn sem sameiginlegur Íslandsbás er skipulagður.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Haukur Sverrisson adalsteinn@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.





