Sendiráð Íslands í Kína hefur fengið mikið af fyrirspurnum frá íslenskum fyrirtækjum þar sem beðið er um að kanna trúverðugleika þarlendra fyrirtækja sem hafa haft samband og lýst yfir áhuga á viðskiptum við viðkomandi fyrirtæki. Þessir aðilar vilja oft koma í heimsókn til Íslands og skoða vöruna og óska því eftir að fá boð um slíka heimsókn frá íslenska fyrirtækinu.
Því miður er oft leyndur ásetningur á bak við slíka beiðni sem kemur viðskiptum ekkert við heldur er verið að nota tækifærið og fá visa áritun til að koma fólki frá Kína og til Evrópu án þess að ætla því að snúa til baka.
Jafnvel er um að ræða mansal í sumum tilfellana þar sem Ísland er notað sem uppgefinn áfangastaður þótt önnur lönd Evrópu verði langoftast fyrir valinu sem endanlegur áfangastaður.
Meðfylgjandi skjal inniheldur dæmi um það hvernig þessi gervifyrirtæki haga samskiptum sínum við viðkomandi fyrirtæki þar sem þau komast snilldarlega hjá því að gefa upp neinar upplýsingar um fyrirtækið og starfsmenn þess svo lítið beri á.





