Ráðstefna og sýning í Silicon Valley í Kaliforníu þann 27. og 28. apríl.
Nordic Green II er haldin til að fylgja eftir mjög árangursríkri ráðstefnu sem haldin var 2008. Í ár mun Silicon Valley vera staðurinn þar sem stjórnendur umhverfistæknifyrirtækja, frá Norðurlöndunum, Eistlandi og Bandaríkjunum, og fyrirtækja sem tengjast þeim geira hefja samstarf fyrir komandi framtíð á sviði umhverfistæknilausna.
Atburður sem þessi er sérstaklega gott tækifæri fyrir þá sem eru að leita að samstarfsaðilum og/eða fjármagni og þurfa að kynna sína vöru og/eða þjónustu fyrir sínum fagmarkaði
Kynning íslensku þátttakendanna
Þorsteinn I. Sigfússon
prófessor og forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Flutti ávarp sem birtist gestum ráðstefnunnar í gegnum netið. Þorsteinn ræddi þróun grænnar nýsköpunar í orkumálum hér heima - á þeim tímamótum þegar Ísland hefur hæsta hlutfall í heimi fyrir endurnýjanlega orku, 80%. Hann ræddi menntunarmál á sviði grænnar orku og veginn framundan. Varmadælur og framleiðsla grænnar orku úr CO2 og vetni, LED lýsingu við framleiðslu lífmassa í gróðurhúsum og ræddi einnig sjávarfallavirkjanir framtíðarinnar ásamt seltuvirkjunarhugmyndum í fjarlægari framtíð.
>> Ávarp Þorsteins I. Sigfússonar
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Hlynur Guðjónsson
Viðskiptafulltrúi og ræðismaður við sendiráð Íslands í NY
Í fjarveru KC Tran, framkvæmdastjóra CRI, flutti Hlynur kynningu á Carbon Recycling International, ásamt Marorku.
Stefna Carbon Reycling International er að fanga koltvísýringsútblástur frá iðnaðarframleiðslu og umbreyta því í endurnýjanlegt fljótandi eldsneyti sem hlotið hefur nafnið RM. Það stendur fyrir Reweble Methanol eða endurnýjanlegt metanól. RM er hægt að blanda í mismunandi tegundir bensíns í hlutföllunum 3% til 15% fyrir óbreytta bíla eða upp að 85% fyrir bíla sem geta tekið breytilegt eldsneyti og 100% fyrir metanólbíla og farartæki knúin efnarafölum. Það að ná koltvísýringi á þennan hátt leiðir til minni losun út í andrúmsloftið og leiðir jafnframt til framleiðslu á endurnýjanlegu eldsneyti á hagkvæman og umhverfisvænan hátt. RM er afar hentugt íblöndunarefni til að uppfylla Evróputilskipun um hlutfall endurnýtanlegs eldsneytis. Ísland hentar mjög vel til framleiðslu á RM þar sem endurnýtanleg orka er auðfengin. CRI mun hefja framleiðslu RM í byrjun árs 2011 þegar fyrsti áfangi 7 MW Georg Olah verksmiðjunnar að Svartsengi verður tekinn í notkun. CRI skoðar nú ýmsar stærri verksmiðjur til að framleiða endurnýjanlegt eldsneyti á Íslandi og í öðrum löndum með útflutning til Evrópu í huga.
>> Erindi CRI
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Isaac Kato
aðstoðarframkvæmdastjóri og fjármálastjóri, Verne Global
Á Íslandi er allt til staðar sem þarf til að reka hagkvæmt og skilvirkt gagnaver:
• Umhverfisvæn orka á samkeppnishæfu verði
• Hagstæð veðurskilyrði sem minnkar kæliþörf (og þar með orkuþörf) umtalsvert
• Hámenntað, ungt samfélag
• Frammúrskarandi innviðir
Raforkuframleiðsla á Íslandi fer einungis fram með endurnýjanlegum orkugjöfum og flutningskerfið er með því besta sem gerist í heiminum. Landið er tengt Evrópu gegnum tvo neðansjávar ljósleiðara og gagnatengingar innanlands eru með innbyggðu tvöföldu öryggi.
Milt og stöðugt loftslag allt að helmingar kælikostnað og gerir gagnaverum þar með kleift að hámarka orkunýtingu sína og á Íslandi er fjöldinn allur af hámenntuðu starfsfólki til að reka og þjónusta hátæknifyrirtæki líkt og gagnaver.





