Viðskiptatækifæri í Rússlandi - vel sóttur kynningarfundur
5. maí 2010
Fjörtíu manns mættu á kynningarfund í morgun þar sem viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Moskvu, Ilona Vasilieva, kynnti viðskiptatækifæri í Rússlandi ásamt því að ræða efnahagsástand, siði, venjur og ýmislegt fleira gagnlegt.
Ilona hefur hitt fjölmörg fyrirtæki í dag og augljóst að mikill áhugi er á þessu markaðssvæði. Auk Rússlands eru umdæmislönd sendiráðsins: Armenía, Aserbaídsjan, Hvíta-Rússland, Kasakstan, Kirgisía, Moldóva, Tadsjikistan, Túrkmenistan og Úsbekistan.







