Íslensk fatahönnun kynnt í Kaupmannahöfn
19. febrúar 2010
Þrjú íslensk fyrirtæki - Farmers Market, Emami og Sif Jakobs - tóku á dögunum þátt í fatahönnunarsýningunni CPH Vision í Kaupmannahöfn.
Sýningin er meðal þeirra stærstu á sviði fatahönnunar í Skandinavíu og sýndu íslensku fyrirtækin haust- og vetrarlínu sína 2011.
Fjöldi skandinavískra og alþjóðlegra kaupenda sótti sýninguna, s.s. frá Noregi, Svíþjóð og Hollandi, og voru íslensku hönnuðirnir almennt ánægðir með viðtökurnar.
Á sama tíma fór fram í Kaupmannahöfn fatahönnunarsýningin Gallery sem fer ört stækkandi. Þar kynntu einnig þrjú íslensk fyrirtæki vetrarlínu sína; Birna, Andersen & Lauth, og Glófi, sem sýndi undir merkinu Varma.











