Góðar viðtökur á námskeiði
Námskeiðsröðin Markaðssetning á netinu hófst á Egilsstöðum sl. laugardag. Námskeiðið var haldið í húsakynnum Þekkinganets Austurlands og mættu 14 manns á námskeiðið.
Að sögn Kristjáns Más sem er annar af leiðbeinendunum, gekk námskeiðið mjög vel og var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu fólk var áhugasamt og viðbrögðin almennt góð.
Umsagnir frá þátttakendum:
- „Námskeiðið var frábært, og kemur til með að fylla upp í það sem mig vantar núna í þekkingu til að komast lengra eða vinna að meiri traffík fyrir síðurnar mínar.“
- „Ég vildi tryggja að ég fylgdist vel með þróuninni og missti ekki af neinum áherslum ... fyrir mig var þetta þægilegt yfirlit yfir stöðuna og möguleikana þessa stundina.“

Guðmundur Arnar annar af leiðbeinendum námskeiðsins.

Áhugasamir þátttakendur
Markaðsetning á netinu
Á námskeiðinu er farið yfir helstu samskiptaleiðir netsins á hagnýtan hátt með áherslu á hvernig samskiptaleiðir netsins geta skapað miklar tekjur. Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi.
Kennslan byggir á bókinni „Markaðssetning á netinu“ en bókin er innifalin í þátttökugjaldi námskeiðsins.
Dagskráin:
– Netið, breytingar og tækifæri – staðan í dag
– Vefborðar
– Leitarvélar
– Samfélagsmiðlar
– Tölvupóstar
– Vefgreiningartól
Allar nánari upplýsingar um næstu námskeið – sjá hér.





