Orka úr jarðvarma og umhverfisvænn arkitektúr vöktu athygli
28. janúar 2010
Þrjú íslensk fyrirtæki, Reykjavik Geothermal, Geysir Architects og Landsvirkjun Power sýndu á sameignlegum bás á Útflutningsráðs á orkusýningunni World Future Energy Summit sem haldin var dagana 18.-21. jan sl.
WFES er ráðstefna og sýning um framtíðarorkulausnir sem haldin er Abu Dhabi ár hvert. Sýningin ár heppnaðist mjög vel og var mikil ánægja meðal sýnenda með þær móttökur sem þau fengu en einnig þann áhuga sem gestir sýndu varðandi jarðvarmaorku og umhverfisvænan arkitektúr sem dæmi.
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og frú Dorrit Moussaieff heimsóttu íslenska básinn meðan á sýningu stóð, en forsetahjónin voru í boði þarlendra stjórnvalda í tengslum við sýninguna.





