Stór markaður – en kallar á mikla vinnu
Hópur fulltrúa íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja er nýkominn frá Moskvu þar sem þau kynntu möguleika Íslands sem áfangastað fyrir ferðaskrifstofum í Rússlandi.
Ferðin var skipulögð af Airtouch sem er umboðsaðili Icelandair í samvinnu við Útflutningsráð og Ferðamálastofu ásamt grænlensku og færeysku ferðamálaráðunum.
Hópurinn hafði tekið þátt í Matka kaupstefnunni í Helsinki dagana áður en kaupstefnan fer sífellt stækkandi. Talið er að um 95 þúsund gestir hafi komið á þá sýningu.
Sunnudaginn 24. janúar kynnti hópurinn sér starfsemi rússneskrar ferðaskrifstofu en því næst var haldið í sendiráð Íslands þar sem ítarleg fræðsla var um rússneska ferðamarkaðinn. Er hann m.a. frábrugðinn því sem þekkist hér að samband milli ferðaskrifstofu og viðskiptavinar er mjög persónulegt og nær því sem við þekkjum við tannlækni eða hárskera. Því eru bein milliliðalaus tengsl afar mikils virði og mikið lagt upp úr að þekkja vel og treysta þeim sem annast eiga þjónustuna. Benedikt Ásgeirsson sendiherra bauð fram afnot af sendiráðinu til fundarhaldanna auk þess að standa fyrir móttöku í lok fundarins þar sem lykilfólki í rússneskri ferðaþjónustu var boðið.
Mánudaginn 25. janúar voru vinnufundir á hinu glæsilega Ritz Carlton hóteli og stóðu þeir frá kl. 10 að morgni til kl. 19 að kvöldi nánast samfellt. Áætluðu fulltrúar íslensku ferðaþjónustufyrirtækjanna að þeir hefðu náð að ræða við 50-60 manns hver um sig en samtals mættu fulltrúar um 120 fyrirtækja. Voru mikil ánægja með þessa góðu þátttöku, en þess má geta að í Moskvu var um -20°C.
Íslensku fyrirtækin sem tóku þátt voru Ferðaþjónusta bænda, Kynnisferðir, Icelandair hótel, Iceland Excursions, Elding hvalaskoðun, Íshestar, Iceland travel og Lúxus ævintýraferðir, auk fulltrúa Ferðamálastofu og Útflutningsráðs.







