Viðskiptafundir og sjávarútvegssýning
Sjávarútvegssýningin Fish International 2010 verður haldin í Bremen dagana 21.-23. febrúar nk. Á sýningunni í ár býðst fyrirtækjum í fyrsta skipti aðstoð við að finna mögulega samstarfsaðila og skipuleggja viðskiptafundi fyrirfram.
Aðilar að Enterprise Europe Network hafa tekið höndum saman um að auðvelda sýnendum og sýningargestum að komast í samband við mögulega samstarfsaðila. Útflutningsráð getur þannig boðið þeim fyrirtækjum sem sækja munu sýninguna að skrá sig á sérstakt vefsvæði þar sem upplýsingum um fyrirtækið er komið á framfæri. Þar er svo hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum við þau sem eru áhugaverð. Vefurinn fer í loftið í upphafi nýs árs.
Fish International er nú haldin í 12. sinn. Sýningin, sem haldin er annað hvert ár, er ein sú stærsta í sjávarútvegi í Þýskalandi og mjög mikilvæg fyrir þýska markaðinn.
Nánari upplýsingar veitir Erna Björnsdóttir, erna@utflutningsrad.is.





