Frábærar undirtekir hjá ráðstefnugestum
Ráðstefnan Vefurinn skapar verðmæti - Aukin tækifæri til útflutnings var haldin 1. desember á Hilton Reykjavík Nordica þar sem fjallað var um sölu á internetinu.
Mæting fór fram úr björtustu vonum en um 500 manns mættu á ráðstefnuna og fræddust um netverslun og þær leiðir sem reynst hafa vel.
Í upphafi fundar sagði Jón Ásbergsson að nú væri rétti tíminn til að skapa gjaldeyri og því ekki úr vegi að efna til þjóðarátaks. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra flutti ávarp og vísaði m.a. í eigin reynslu í vefverslun og hvatti fólk til að sameinast við að koma íslenskum vörum á framfæri og væri vefurinn m.a. vel til þess fallinn.
Tækifæri á vefnum – fulltrúar ólíkra fyrirtækja sögðu frá árangursríkum leiðum við sölu á netinu: Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri 66°Norður, Sófus Gústavsson, eigandi Nammi.is, Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, Nathan Richardsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs CCP Games, Ragnar Th. Sigurðsson, eigandi Arctic Images, Friðrik Skúlason, stofnandi Friðriks Skúlasonar ehf., Kristján Gunnar Steinarsson, verkefnastjóri Gogoyoko ehf., Eldar Ástþórsson, markaðsstjóri Gogoyoko ehf. og Kristinn Leifsson, vefmarkaðsstjóri SagaMedica.
Rob Snell, flutti erindi undir heitinu It’s simple to sell online – It’s just a question of starting. Rob er aðaleigandi Snell Brothers, ráðgjafafyrirtækis sem sérhæfir sig í sölu á netinu og skrifaði bókina Yahoo Store! For Dummies. Hann sagði frá víðtækri reynslu sinni af hönnun, þróun og markaðssetningu netverslana sem velta milljónum dollara á ári. Rob hvatti fólk til að vanda til verka og sagði það lykilatriði að selja beint í gegnum netið. Hann hvatti fólk einnig til að velja texta og fyrirsagnir þannig að leitarvélar myndu hjálpa til þegar leitað væri eftir ákveðnum lykilorðum. Aðalatriðið er að vera sýnilegur og sjá fyrir hvaða upplýsingar gagnast best fyrir viðskiptavininn. Hugleiða hvaða spurningar tilvonandi viðskiptavinur gæti haft og hafa svörin tilbúin.
Fundargestum gafst tækifæri til að spjalla við fyrirlesara í kaffihléi og að loknum fundi í hádeginu og nýttu það margir til að fræðast frekar um leiðir til að selja á netinu. Viðbrögð fundargesta hafa verið afskaplega góð og margir haft samband til að lýsa ánægju með ráðstefnuna.







