Íslensk fyrirtæki funda með sendiherrum Íslands
27. nóvember 2009
Á síðustu vikum hafa sendiherrar Íslands í London, Delí, Vín, París, Helsinki og verðandi sendiherra í Kaupmannahöfn, boðið upp á viðtöl við einstaklinga og fyrirtæki og nýttu fjölmargir það tækifæri.
„Fullbókað var í þá viðtalstíma sem fyrirtækjum og einstaklingum stóð til boða og er afar ánægjulegt til þess að vita hve áhuginn var mikill,“ segir Andri Marteinsson sem hafði milligöngu um fundina og er jafnframt tengiliður við viðskiptafulltrúa í sendiráðum Íslands erlendis.
Allar nánari upplýsingar veitir Andri andri@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.





