Viðskiptasendinefndir í upphafi næsta árs
Nýtt ár tekur á móti þér með nýjum tækifærum. Útflutningsráð Íslands undirbýr nú ferðir viðskiptasendinefnda í janúar og febrúar 2010. Þeir sem hafa áhuga á að slást í för eru beðnir um að tilkynna þátttöku sem fyrst.
16.-17. janúar – Mumbai og Bangalore á Indlandi.
Í tilefni heimsóknar forseta Íslands til Indlands verður efnt til viðskiptaþings í Mumbai þann 16. janúar og farið í skoðunarheimsókn til nokkurra fyrirtækja í Bangalore þann 17. janúar. Skipulagðir verða viðskipafundir að óskum þátttökufyrirtækja.
18.-21. janúar – World Future Energy Summit í Abu Dhabi, orku- og umhverfissýning ásamt ráðstefnu.
Með þátttöku opnast möguleiki fyrir íslensk fyrirtæki í öllum þeim atvinnugreinum sem tengjast orku og umhverfismálum, s.s. verk-og tæknifræðingum, arkitektum, skipulagsfræðingum, sérfræðingum um frárennslismál o.fl., að hitta og ræða við erlend fyrirtæki sem ætla að hefja eða hafa þegar hafið starfsemi í Mið-Austurlöndum í málefnum tengdum orkunýtingu og sjálfbærri umhverfisstefnu. Forseti Íslands mun heimsækja sýninguna.
24.-25. janúar – Moskva í Rússlandi.
Ferðaþjónusta. Skipulagðir hafa verið vinnufundir í Moskvu með fjölda ferðaskrifstofa og skipuleggjenda í samvinnu við Travel Trade Gasette – Russia. Einnig verður í samvinnu við sendiráð Íslands boðið upp á fræðslu um markaðsaðstæður o.fl.
26. febrúar – Mílanó á Ítalíu.
Borgarstjórinn í Mílanó hefur boðið Íslandi að skipuleggja sérstakan Íslandsdag. Össur Skarphéðinsson, utanríksiráðherra, mun leiða sendinefnd íslenskra fyrirtækja til Mílanóborgar. Viðskiptasendinefndin mun m.a. samanstanda af fyrirtækjum úr ferðaþjónustu, orkugeira, hönnun o.fl. Skipulagðir verða fundir með ítölskum ferðaþjónustufyrirtækjum m.a. um fundi og ráðstefnur, með einstaka orkufyrirtækjum, hönnunarfyrirtækjum og öðrum sem til þarf.
Nánari upplýsingar veita Þorleifur Þór Jónsson thorleifur@utflutningsrad.is og Elsa Einarsdóttir elsa@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.





