Samstarfssamningur undirritaður
Útflutningsráð Íslands og Ferðaþjónusta bænda (FB) hafa ákveðið að starfa saman að handleiðslu- og þróunarverkefni sem miðar að því að vinna með ferðaþjónum innan vébanda FB.
Verkefnið miðar að því að finna, greina og þróa nýja möguleika í þjónustu við ferðamenn, huga að mögulegum viðbótum við þá þjónustu sem þegar er til staðar og stuðla að samvinnu milli aðila innan svæðis um nýja eða bætta þjónustu. Verkefnin verða unnið í hverjum landshluta fyrir sig. Reiknað er með að þau verði alls sex talsins og áætlað er að haldin verði tvö til þrjú á ári. Verkefnunum verður stýrt af Útflutningsráði í náinni samvinnu við Ferðaþjónustu bænda. Þeir sem geta tekið þátt þurfa að vera aðilar að FB.
Samstarfssamningur milli aðila var undirritaður í dag á uppskeruhátíð Ferðaskrifstofu bænda.

Frá vinsti; Sævar Skaptason, Ferðaþjónustu bænda – Bændaferðir, Hermann Ottósson, Útflutningsráði og Marteinn Njálsson, Félagi ferðaþjónustubænda.






