Íslandsdagur í Mílanó
12. nóvember 2009
Borgarstjóri Mílanóborgar hefur boðið til Íslandsdags föstudaginn 26. febrúar 2010. Af því tilefni mun Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra leiða sendinefnd fyrirtækja til borgarinnar.
Á dagskrá verða kynningar á samskiptum landanna og á íslenskri hönnun og nýsköpun. Jafnframt verða viðskiptafundir sem Útflutningsráð skipuleggur bæði með sérstaka áherslu á ferðaþjónustu á sviði funda og ráðstefna auk þess sem skapað verður tækifæri fyrir þau fyrirtæki sem eru áhugasöm að hasla sér völl á ítalska markaðnum, að koma sér á framfæri og funda með líklegum samstarfsaðilum.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.





