Vel sóttur fundur um markaðsráðgjöf á Spáni
Fundur um markaðsráðgjöf á Spáni, sem haldinn var á vegum Útflutningsráðs 9. september sl., var vel sóttur.
Spánn er eitt af umdæmislöndum sendiráðs Íslands í Frakklandi en þar sem ekki er starfandi viðskiptafulltrúi þar var spænska ráðgjafarfyrirtækið Deker fengið til að kynna starfsemi sína á fundinum. Fulltrúi þess, Javier Moreno Oto, kynnti markaðsumhverfið á Spáni og þá aðstoð sem Deker getur veitt íslenskum fyrirtækjum. Javier bauð upp á viðtalstíma þennan sama dag og voru fjölmörg fyrirtæki sem nýttu sér það og hittu hann að máli.
Dagskrá fundarins:
• Stutt yfirlit um spænska hagkerfið
• Helstu staðreyndir um inn- og útflutning
• Að ná fótfestu á markaði
• Tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki
• Að eiga viðskipti við Spánverja
• Tenglar og aðrar mikilvægar upplýsingar
Glærur frá kynningarfundi.
Kynning á ráðgjafafyrirtækinu Deker






