Made in Iceland
Um sextíu manns sóttu fund sem haldinn var miðvikudaginn 19. ágúst sl. Tilefni fundarins var kynning á stöðu verkefnisins Made in Iceland sem er kynningarátak á íslenskum vörum og þjónustu í Kína.
Tilgangur verkefnisins er að leita uppi tækifæri til að kynna þjónustu og vörur íslenskra fyrirtækja í Kína en þegar hafa hátt á þriðja tug fyrirtækja skráð sig í verkefnið.
Viðskiptafulltrúi við sendiráð Íslands í Peking, Petur Yang Li, heldur utan um verkefnið í Kína ásamt starfsmönnum sendiráðsins en hér á landi er Andri Marteinsson hjá Útflutningsráði tengill við fyrirtækin.
Á fundinum var m.a. farið yfir stöðu verkefnisins og vefur sem inniheldur upplýsingar um öll fyrirtækin bæði á ensku og kínversku var formlega opnaður. Sjá nánar á vefslóðinni www.made-in-iceland.com.cn/
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Kína, lýsti viðskiptaumhverfinu þar í landi og þeirri miklu grósku sem þar á sér stað. Í máli Gunnars kom fram að fyrirtæki þyrftu að hafa ýmis atriði í huga varðandi útflutning til Kína og að starfsfólk sendiráðs Íslands gerði allt sem í þeirra valdi stæði til að greiða leiðina fyrir fyrirtækin.
Hreinn Pálsson, framkvæmdastjóri þátttöku Íslands í World Expo 2010, kynnti hvernig Íslendingar verða sýnilegir á þessari stærstu sýningu heims og gat þess m.a. að Kínverjar hafi sett meira fjármagn í að gera þessa sýningu sem glæsilegasta en þegar Ólympíuleikarnir voru haldnir.
Þess má geta að enn er verið að skrá fyrirtæki í verkefnið en nánari upplýsingar veitir Andri Marteinsson hjá Útflutningsráði, andri@utflutningrad.is.
· Stutt lýsing á verkefninu Made in Iceland
· Glærur frá kynningarfundi






